
Vonandi eru viðskiptavinir okkar jafn spenntir og við erum fyrir þessari nýjung í vöruúrvalið okkar !
En við höfum tekið inn Kandís, en það er handgerður íslenskur brjóstsykur úr náttúrulegum hráefnum, jurtum og berjum.
Við hvetjum alla til að prófa þessa dásemd !

TrüFrü býður upp á einstaka bragðupplifun þar sem alvöru ávextir eru tíndir þegar þeir eru fullþroskaðir, húðaðir með ljúffengu súkkulaði og síðan frystir til að varðveita ferskleika, bragð og áferð. Takið vöruna úr frysti, leyfið henni að þiðna í um 15 mínútur og njótið fullkominnar samsetningar af ávöxtum og súkkulaði.

Við höfum nú tekið inn tvær vörur frá ABENA til reynslu, en ABENA er rótgróið danskt fjölskyldufyrirtæki sem leggur áherslu á að framleiða gæðavörur til þess fallnar að auka lífsgæði notenda og alltaf með sjálfbærni í huga. Sterk arfleið og djúp sérfræðikunnátta einkennir fyrirtækið og þjónustu þess.
Við vonum að þessi nýjung falli vel í viðskiptavini okkar og hvort að grundvöllur sé á að bæta við vöruúrvalið frá ABENA.

Nýupptekknar rauð- og gulrófur frá Auðkúlu í austur-hún eru nú komnar í sölu hjá okkur í KVH !
