FRÉTTIR
30. júlí 2026

Endurnýjun umsókna.
Við hjá KVH erum rík af góðum vinnusömum “krökkum” sem hafa verið hluti af starfsmannahópi kaupfélagsins í áraraðir. Undanfarin ár höfum við verið svo lánsöm að þau sem byrjuðu að vera með okkur í 9.bekk vildu vera áfram og hafa nokkur þeirra verið hér nánast síðan veturinn 2024 sem er frábært!
Mikil vinna fer í að þjálfa upp nýtt starfsfólk og oft erfitt að halda út á álagstímum með nýtt fólk í brúnni og eins þegar mikil starfsmannavelta er þá verða hlutirnir oft töluvert erfiðari en á þarf að halda.
Nú er svo komið að við þurfum að sjá á eftir nokkrum sem hafa verið lengi með okkur og hvetjum við því alla 9.bekkinga sem hafa áhuga á að starfa hjá KVH næstu vetra og sumur um að sækja um og eða endurnýja gamlar umsóknir.
Einnig væri gaman að heyra frá áhugasömum íslenskumælandi einstaklingum eldri en 20.ára.
Best er að senda línu á netfangið thorunn@kvh.is.
KVH veit og skilur að án góðs starfsfólks væri þetta ekki hægt.
Hlökkum til að heyra í sem allra flestum, þó aðeins brot endi svo í starfsmannahópnum.
Sjáumst í KVH !
