FRÉTTIR

Markaðsátak KVH

20. maí 2026

Markaðsátak bygginga- og búvörudeildar KVH.


Það er ánægjulegt að tilkynna að KVH fór í markaðsátak nú í síðustu viku þar sem einblöðungur var sendur inná öll heimili og fyrirtæki í Austur Húnavatnssýslu og Dalabyggð.

Hægt er að sjá einblöðunginn á heimasíðu KVH og eins er hægt að líta á hann hér fyrir neðan.


Okkur var farið að þykja nauðsynlegt að kynna vöruúrval og þjónustu KVH aðeins út fyrir okkar sveit og vonumst við til að þetta falli fólki vel í geð. Í kjölfarið af þessu mun birtast girðingarefnis auglýsing í næsta Bændablaði svo endilega fylgist með KVH í því riti. Við stefnum svo á öðrum almennum einblöðung í nágranna byggðarlögin í lok ársins.



KVH tekur vel á móti öllum og hlakkar til að fá að halda áfram að þjónusta nýja sem eldri viðskiptavini, við gerum okkur grein fyrir því að án ykkar væri þetta ekki hægt.

Áfram KVH.


Þórunn Ýr Elíasdóttir

Kaupfélagsstjóri.