FRÉTTIR

Ný stjórn KVH

29. apríl 2026

Ný stjórn hjá KVH hefur tekið til starfa


Þann 14. apríl síðastliðinn var aðalfundur KVH haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Var vel mætt á fundinn og var gleðilegt að sjá að töluverður fjöldi af áheyrnarfulltrúum mættu á fundinn. Að auki mættu allir kjörnir fulltrúar til fundar sem mér skilst að sé með fyrstu skiptum að það hafi gerst að ekki hafi þurft að boða varafulltrúa á aðalfund sem eru frábærar fréttir fyrir KVH og vonandi það sem koma skal.

Stjórn og starfsmenn fagna því að vel sé mætt á fundi félagsins þar sem þetta er jú sameign okkar allra.


Það varð töluverð breyting á stjórn félagsins og leystu Örn Óli Andrésson og Oddur Sigurðarson þá Þorstein Sigurjónsson og Ársæl Daníelsson af hólmi. Báðir hafa þeir setið í stjórn félagsins til tugi ára og þökkum við þeim hjartanlega fyrir alla þá vinnu og þjónustu sem þeir hafa lagt til starfsins á liðnum árum. Kom fram á aðalfundi að Þorsteinn hefur setið í rúma 4.áratugi og ekki misst af ári á aðalfundum félagsins, sem er viss elja út af fyrir sig.

Örn Óli var áður varamaður í stjórn og sætið hans tók Hermann Geir Karlsson.


Við bjóðum nýja stjórnarmenn innilega velkomna í hópinn og væntum þess að samstarf haldi áfram að vera gott eftir sem áður.

Ný stjórn hefur nú þegar fundað í fyrsta sinn og boðaði sá fundur gott til framtíðar.


Flestir hafa að öllum líkindum tekið eftir nýju útliti heimasíðunnar og er smátt og smátt að bætast við upplýsingarnar sem þar eru að finna. Á heimasíðunni er t.d hægt að skoða ársreikninga KVH undanfarin ár og er sá nýjasti væntanlegur á heimasíðuna á næstu dögum.


Stjórn KVH þakkar fundargestum, starfsmönnum, fulltrúum og síðast en ekki síst kvenfélögunum sem báru fram og sáu um veitingar á deildarfundum og aðalfundi með sínum mikla glæsibrag.

Kærar þakkir fyrir komuna og ykkar framlag til KVH.

Vert er að minnast þess að kvenfélagið Iðja gaf vinnu sína og veitingarnar á deildarfund Hrútafjarðar og miðfjarðardeildar með kærum þökkum fyrir stuðning KVH til þeirra á liðnum árum. Hjartans þakkir Iðju konur fyrir það.


Stjórn KVH hlakkar til komandi tíma með ykkur öllum og vonandi sjáum við sem allra flesta á fundum félagsins að ári komandi.