FRÉTTIR

Nýjustu fréttir frá KVH

16. apríl 2026

Nýjustu fréttir frá KVH


Eins og flestir hafa vonandi tekið eftir eru komnar nýjar innkaupakerrur í verslunardeildir KVH. Gömlu kerrurnar voru komnar vel til ára sinna og búnar að sinna sínu hlutverki vel en voru margar hverjar orðnar ansi lúnar og því löngu komin tími á hvíld fyrir þær. Við vonumst til að nýjar kerrur muni standa sig í langan tíma í þjónustu KVH og að viðskiptavinir okkar verði ánægðir með nýjar kerrur.


Frá lok mars hafa verið haldnir deildarfundir félagsins og aðalfundur félagsins var haldin þriðjudaginn 14. apríl. Mæting á alla fundina var nokkuð góð og gaman var að sjá hversu vel var mætt á aðalfundinn en þó nokkuð margir mættu á þann fund án þess að vera kjörnir fulltrúar á fundinum. Breyting varð á stjórn KVH eftir aðalfundinn og verða færðar frekari fréttir af því á næstu dögum / vikum. Einnig mun ársreikningur félagsins verða aðgengilegur á heimasíðu KVH um svipað leiti.



Stjórn KVH og kaupfélagsstjóri þakka félagsmönnum og öðrum fundargestum kærlega fyrir komuna á fundina og sérstakir þakkir fær starfsfólk KVH sem sá sér fært um að mæta hvort sem það var á deildarfundi eða aðalfund. Og vonumst til að nýjar kerrur falli vel í kramið hjá viðskiptavinum KVH.