Deildar-, og aðalfundur KVH 2024

Nú fer að líða að deildarfundum KVH og munum við hefja leika í Dæli, Víðidal mánudaginn 18.mars kl.20.00 fyrir Þorkelshólshreppsdeild, þriðjudaginn 19.mars á sama tíma verðum við í Ásbyrgi með fund Hrúta- og Miðfjarðadeilda og svo í Félagsheimilinu Hvammstanga á miðvikudegium 20.mars fyrir Hvammstangahreppsdeild og Þverár- og Kirkjuhvammsdeilda.

Dagskrá deildarfundanna:

1.venjuleg aðalfundarstörf deilda

2. Önnur mál

Aðalfundur Kaupfélagsins verður svo í Félagsheimilinu þriðjudaginn 09.apríl og verður dagskrá fundarins birt á heimasíðunni í byrjun apríl

Allir eru hjartanlega velkomnir á fundina og vonumst við til að sjá sem flesta

Kaupfélag Vestur Húnvetninga