Frystiklefa sögu KVH lokið

Síðustu vikuna í febrúar bar til tíðinda hjá okkur í KVH. Þá var skrúfað fyrir frostið í fyrsta og síðasta sinn síðan því var hleypt á í frystiklefunum okkar fyrir hartnær 100 árum síðan. Tekin var ákvörðun snemma á árinu 2023 að ekki borgaði sig að leggja í mikil fjárútlát og viðhald við að viðhalda frostinu þar sem kerfið var orðið gamalt og úrsérgengið. Okkur telst til að KVH sé með þeim allra síðustu á landsvísu sem hættir að bjóða uppá frystihólf eins og þessi. Þekktust þau þó nánast í hverju þéttbýli hér á árum áður. Við þökkum leigjendum samstarfið öll þessi ár og bíðum svo spennt eftir að sjá hvernig byggingin mun koma undan löngum frosta vetri.

Að lokum hvetjum við sem allra flesta til að fylgjast með síðunni okkar www.kvh.is. Er ætlunin að vekja hana til lífsins frá og með deginum í dag og setja reglulega inn upplýsingar um starfsemina okkar sem og benda ykkur á það vöruúrval sem fæst í Kvh.

Starfsfólk KVH