Nýjustu fréttir á forsíðunni og skráning á netfangalista

Eins og sjá má er komin nýr frétta banner á góðri íslensku á heimasíðuna okkar, við vonum að þetta muni falla í góðan jarðveg. Við ætlum að vera dugleg að henda inn fréttum af því helsta sem er að gerast í KVH og miðla upplýsingum til sem flestra. Til að enginn missi af neinu þá er nú einnig hægt að skrá sig á netfangalista KVH (sjá skráningarhnapp í grænu línunni) og eru þá sendir helstu viðburðir tilboð og fleira á netföng viðtakenda. Það verður þó engum drekkt í tölvupóstum frá KVH.

Minnum svo á deildarfundina í þessari viku, aðalfundinn þann 09.apríl, páskalokunina og breytta opnunartímann sem tekur gildi strax eftir páskana.

Starfsfólk KVH