Sauðburðardagar í KVH 10-13.apríl

Dagana 10.-13.apríl (miðvikudagur – laugardags) ætlum við að efna til sauðburðardaga í KVH.

Byggingarvörudeildin mun bjóða uppá alltað 30% afslátt af öllu því helsta er við kemur sauðburði og einnig verða fleiri vörur í versluninni á tilboðum þessa daga. Kynning verður á Trio loop rúlluplasti en inniheldur það 30% af endurunnu plasti.

Kjörbúðin lætur ekki sitt eftir liggja og verður með valdar vörur á tilboðum þessa daga. Einnig verða matar- og drykkjarvörur á góðum afslætti. Um er að ræða einn vöruflokk á dag og við vekjum athygli á að þau tilboð verða einungis í gildi þann eina auglýsta dag. Hvetjum við því alla til að fylgjast vel með á heimsíðu KVH og Facebook svæðinu til að sjá hvað er í boði.

Fyrir þá viðskiptavini sem ekki sjá sér fært að komast þessa völdu tilboðsdaga en vilja nýta sér þann afslátt sem er í boði, að þá er hægt að hafa samband við okkur annaðhvort með því að hringja eða senda tölvupóst á tilboðsdegi vörunnar og við sjáum til þess að hún verði tekin frá. Varan dettur aftur í almenna sölu mánudaginn 15. apríl. ef ekki verður búið að sækja frátekna vöru og ganga frá greiðslu.

 

Við vonumst til að þessir dagar muni falla í góðan jarðveg og að sem flestir sjái sér fært um að mæta til okkar, kynna sér vöruúrvalið, taka spjall og eiga góða stund saman í KVH.

Sjáumst þá.

Starfsfólk KVH