Sauðburðardagar KVH fengu góðar undirtektir

Sauðburðardagarnir okkar runnu sitt skeið á mánudaginn og var gaman að sjá hvað þeir fengu góðar undirtektir. KVH þakkar viðskiptavinum sínum fyrir komuna og vonum að sem allra flestir hafi notið góðs af tilboðunum, hvort sem var í bygg eða kjörbúðinni. Gallaða timbrið verður áfram á niðursettu verði á meðan birgðir endast. Sauðburðarvörurnar verða svo að sjálfsögðu á sínum stað þó svo að tilboðsdögum sé lokið.

Sjáumst sem oftast í KVH.